Erlent

Vilja dauðadóma yfir Guantanamo föngum

Tvíburaturnarnir brenna.
Tvíburaturnarnir brenna.

Bandaríska varnarmálaráðuneytið mun krefjast dauðadóms yfir sex föngum sem haldið er í Guantanamo fangelsinu á Kúbu. Meðal þeirra er Khalid Sheik Mohammed, sem talinn er hafa skipulagt árásina á Bandaríkin fyrir sex árum.

Þrjúþúsund manns létu lífið þegar farþegaflugvélum var flogið á Tvíburaturnana í New York og á varnarmálaráðuneytið í Washington. Fjórða vélin náði aldrei á áfangastað hryðjuverkamannanna, sem var Hvíta húsið.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×