Erlent

SAS berst fyrir lífi sínu

Óli Tynes skrifar
SAS hefur tapað gríðarlegu fé vegna verkfalla og bilaðra flugvéla.
SAS hefur tapað gríðarlegu fé vegna verkfalla og bilaðra flugvéla.

Nýr stjórnarformaður SAS flugfélagsins segir að það berjist nú fyrir lífi sínu. Daninn Fritz H. Schur segir að ekkert fyrirtæki á Norðurlöndum eigi í eins miklum erfiðleikum og SAS.

Það sé meðal annars vegna stærðar félagsins og hversu flókið sé að reka það. Stjórnarformaðurinn segir að harðar kjaradeilur starfsmanna hafi átt stóran þátt í að draga máttinn úr félaginu. Ef þær haldi áfram verði það gjaldþrota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×