Innlent

Enn leitað að bandarísku ferjuflugvélinni

Challenger vél danska flughersins.
Challenger vél danska flughersins.

Leit stendur enn yfir að bandarísku ferjuflugvélinni sem talið er að hafi hrapað í sjó um 50 sjómílur vestur af Keflavík í gær. Aðstæður til leitar hafa batnað eftir því sem liðið hefur á daginn, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Varðskip frá Landhelgisgæslunni er við leit. Þá eru fokker flugvél gæslunnar, TF-SYN, og Challenger flugvél danska flughersins við leit úr lofti. Ekkert hefur fundist af vélinni. Leit verður haldið áfram fram í myrkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×