Innlent

Íslenski pilturinn sem leitað var að í Danmörku fannst látinn

Ívar fannst um kílómetra frá þeim stað þar sem bíll hans fannst eftir því sem lögregla segir.
Ívar fannst um kílómetra frá þeim stað þar sem bíll hans fannst eftir því sem lögregla segir. MYND/Sighvatur Jónsson

Búið er a að finna íslenska piltinn Ívar Jörgensson sem saknað hefur verið í Danmörku undanfarna viku og er hann látinn. Frá þessu er greint á vef Extra Bladet og þar vitnað í lögregluna á Norður-Jótlandi.

Ívar, sem var 18 ára, bjó í Havndal á Jótlandi með fjölskyldu sinni og hafði hans verið saknað frá sunnudeginum 3. febrúar en það kvöld hugðist hann sækja vinkonu sína en kom aldrei til hennar. Bíll hans fannst bensínlaus á mánudagsmorgninum á milli bæjanna Valsgaard og Hadsund og var gerð ítarleg leit að honum á stóru svæði þar í kring. Nokkrar vísbendingar bárust í málinu síðustu daga og fannst hann í um kílómetrafjarlægð frá bílnum að sögn lögreglu.

Extra Bladet segir að líkið hafi fundist norðvestur af bænum Hadsund á svæði þar sem mikið er af minni vötnum og síkjum. Lögregla segir ólíklegt að honum hafi verið ráðinn bani en segir þó of snemmt að útiloka það alveg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×