Viðskipti erlent

Nýmarkaðsríkin næm fyrir samdrætti

Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Mynd/AFP

Nýmarkaðsríki munu ekki verða ónæm fyrir efnahagssamdrætti stærri hagkerfa. Þetta sagði Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í ræðu sem hann hélt á Indlandi. Skýringing er sterk tenging nýmarksríkjanna við stærstu iðnríki heims.

Þetta er ólíkt því sem margir hafa haldið fram til þessa en spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafði áður reiknað með því að hagvöxtur nýmarkaðsríkja myndi vega upp á móti samdrætti annars staðar. Indland og Kína eru þar á meðal, að sögn breska ríkisútvarpsins.

Sjóðinum reiknast svo til að hagvöxtur muni mælast 4,1 prósent á þessu ári samanborið við fimm prósent í fyrra.

Samdrátturinn á rætur sínar að rekja til undirmálslánakrísunnar í Bandaríkjunum.

Breska ríkisútvarpið hefur eftir Strauss-Kahn, að leiðtogar og seðlabankar nýmarkaðsríkja verði að fara varlega á næstunni af þessum sökum og gæta að fjármálastöðugleika landanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×