Erlent

Eins og á svíni

Óli Tynes skrifar
Parviz Khan.
Parviz Khan. MYND/AP

Höfuðpaurinn í hópi múslima sem ætluðu að myrða breskan hermann og skera af honum höfuðið "eins og á svíni," var í dag dæmdur í 14 ára fangelsi.

Ætlan mannanna var að taka upp á myndband þegar þeir skæru höfuðið af hermanninum og setja það á arabisku sjónvarpsstöðina Al Jazeera. Með því vildu þeir valda ótta meðal breskra hermanna og almennings.

Parviz Khan er 37 ára gamall þriggja barna faðir. Hann er pakistanskur að uppruna. Hann viðurkenndi einnig að hafa sent næturmyndavélar, tölvur og annan búnað til Pakistans.

Búnaðurinn var ætlaður skæruliðum sem berjast gegn vestrænum hersveitum í Afganistan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×