Erlent

Létt yfir forseta Bandaríkjanna

Óli Tynes skrifar

George Bush forseti Bandríkjanna hefur verið á ferð í Afríku undanfarna daga og heimsótt mörg Afríkuríki. Lítið hefur farið fyrir þessu í fréttum.

Ástæðan kann að vera sú að forsetanum hefur hvarvetna verið mjög vel tekið. Engin mótmæli eða óeirðir.

Það er því létt yfir forsetanum. Á meðfylgjandi mynd er hann ásamt John Kufuor forseta Ghana að árita gifsumbúðir á handlegg Debbie Charles, fréttakonu Reuters fréttastofunnar.

Debbie fylgir forsetanum á ferð hans. Hún  meiddi sig á handlegg í Rúanda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×