Viðskipti erlent

Græn ljós kviknuðu á síðustu metrunum

Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum tók kipp upp á við á síðasta hálftímanum sem markaðir voru opnir vestanhafs í dag. Stærstan þátt í viðsnúningnum á á CNBC sjónvarpsfréttastöðin vestra, sem greindi frá því skömmu fyrir lokun markaða að snemma í næstu viku verði greint frá jákvæðum fréttum sem komi skuldatryggingafyrirtækinu Ambac Financial Group til bjargar.

Fyrirtækið hefur átt við mikinn vanda að stríða í kjölfar lausafjárkrísunnar og lánshæfiseinkunnir fyrirtækisins lækkaðar, að sögn fréttastofunnar Associated Press. Í kjölfar fréttarinnar rauk gengi bréfa í fyrirtækinu upp um 16 prósent og smitaði það mjög hratt út frá sér.

Hlutabréf hafa lækkað talsvert vestanhafs í vikunni þar sem verðbólga hefur aukist auk þess sem hagvísar benda til að samdráttarskeið sé yfirvofandi. Þá er fátt í spilunum sem bendir til að bandaríski seðlabankinn muni halda áfram snörpu vaxtalækkunarferli heldur muni hann horfa til þess að draga úr verðbólgu.

Dow Jones-hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,79 prósent og Nasdaq-vísitalan um 0,16 prósent.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×