Erlent

Barack Obama með túrban

Óli Tynes skrifar
Barack Hussein Obama með túrbaninn í Kenya.
Barack Hussein Obama með túrbaninn í Kenya.

Hillary Clinton og liðsmenn hennar eru orðin svo örvæntingarfull vegna velgengni Baraks Obama að þau hafa sent mynd af honum með túrban til fjölmiðla.

Obama sem ber millinafnið Hussein hefur orðið fyrir barðinu á kynþáttahöturum sem segja að hann sé hryðjuverkamaður sem hafi að markmiði að breyta Bandaríkjunum í kalífat múslima.

Myndin af Obama með túrbaninn var tekin þegar hann var í heimsókn í sómölsku þorpi í Norðaustur Kenya.

Þar klæddist hann hátíðarbúningi innfæddra og bar meðal annars túrban. Þetta var árið 2006.

Faðir frambjóðandans var ættaður frá Kenya og hann hefur margsinnis farið þangað í heimsókn til þess að kynnast upprunalandi sínu og fólkinu sem þar býr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×