Sport

Vésteinn heiðraður af forseta Eistlands

Elvar Geir Magnússon skrifar
Vésteinn og Gerd Kanter.
Vésteinn og Gerd Kanter.

Vésteinn Hafsteinsson, þjálfari í frjálsum íþróttum, hefur verið sæmdur heiðurskrossi frá forseta Eistlands.

Vésteinn fékk Terra Mariana krossinn fyrir hans framlag til íþrótta í landinu.

Vésteinn hefur undanfarin ár þjálfað kringlukastarann Gerd Kanter, einn fremsta frjálsíþróttamann Eistlands. Á myndinni til hliðar má sjá Véstein og Kanter saman við athöfnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×