Viðskipti erlent

Olíuverð í sögulegu hámarki

Maður horfir á mælinn tikka á bensínstöð. Verðið á bensíndropanum hefur hækkað samhliða hráolíuverðinu, sem stendur í hæstu hæðum.
Maður horfir á mælinn tikka á bensínstöð. Verðið á bensíndropanum hefur hækkað samhliða hráolíuverðinu, sem stendur í hæstu hæðum. Mynd/AFP

Verð á hráolíu hefur er komið í rúma 102 dali á tunnu og hefur aldrei verið hærra. Sérfræðingar spá því að eftir því sem verðbólga aukist í Bandaríkjunum geti svo farið að tunnan fari í allt að 105 dali.

Verðið fór hæst í 102,08 dali á tunnu í framvirkum samningum á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum og í Lundúnum í Bretlandi í dag.

Helstu þættir sem stýra verðþróun á hráolíu í dag er veiking bandaríkjadals og verðhækkun á hrávöruverði, svo sem hveiti, kaffi og eðalmálmum á borð við gull en hrávöruvísitölur standa nú í hæstu hæðum.

Olivier Jakob, svissneskur sérfræðingur um olíumarkaðinn, segir í samtali við Bloomberg-fréttastofuna í dag, að fjárfestar hafi í auknum mæli keypt hrávöru til að verja sig gegn aukinni verðbólgu og lækkun á gengi bandaríkjadals. „Haldi dollarinn áfram að lækka á sama tíma og olíubirgðir í Bandaríkjunum aukast ekki þá gæti olíuverðið hæglega farið í 105 dali á tunnu," segir hann.

Bandaríska orkumálaráðneytið birtir skýrslu sína um olíubirgðir í Bandaríkjunum í dag. Reiknað er með að birgðirnar hafi aukist á milli vikna, að sögn Bloomberg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×