Tónlist

Stórtónleikar í Slane Castle

Rokkararnir í Oasis ætla að halda stórtónleika í Slane Castle á Írlandi næsta sumar.
Rokkararnir í Oasis ætla að halda stórtónleika í Slane Castle á Írlandi næsta sumar. Vísir/Getty

Bresku rokkararnir í Oasis ætla að halda stórtónleika í Slane Castle á Írlandi 20. júní á næsta ári. Pláss er fyrir allt að hundrað þúsund manns á tónleikunum, sem yrðu á meðal þeirra stærstu í sögu sveitarinnar.

Oasis hefur reyndar áður spilað í Slane Castle, árið 1995, þegar sveitin hitaði upp fyrir R.E.M. Nýjasta plata Oasis, Dig Out Your Soul, fór beint í efsta sæti breska vinsældalistans. Þar með hafa allar sjö plötur sveitarinnar komist á toppinn í Bretlandi, sem er einstakur árangur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.