Viðskipti erlent

Deilur vegna samnings um eldsneytisflugvélar

Eldsneytisflugvél KC-135 undirbýr að gefa B-52 sprengiflugvél eldsneyti á flugi.
Eldsneytisflugvél KC-135 undirbýr að gefa B-52 sprengiflugvél eldsneyti á flugi. MYND/AFP

Deilur hafa sprottið upp í bandaríska þinginu vegna samnings sem gerður hefur verið við evrópska flugvélaframleiðandann Airbus og Northrop Grumman um framleiðslu eldsneytisflugvéla fyrir bandaríska herinn. Þingmenn frá Washington og Kansas eru æfareiðir vegna samningsins en í ríkjum þeirra eru einmitt verksmiðjur Boeing flugvélaframleiðandans.

Boeing verður af rúmlega 2.600 milljörðum króna við að missa samninginn, eða sem samsvarar 40 milljörðum bandaríkjadala.

Vélarnar verða settar saman í Alabama í Bandaríkjunum en smíðaðar að mestu leiti í Evrópu.

Boeing segist bíða útskýringa frá hernum áður en ákveðið verði hvort ákvörðuninni verði áfrýjað.

Í yfirlýsingu þingmanns frá Seattle segir að mikil reiði ríki vegna ákvörðunarinnar um að framleiðsla flugvéla fyrir Bandaríkjaher fari til Evrópu.

Nýja eldsneytisflugvélin fær nafnið KC-45A í bandaríska flughernum. Hún er byggð á grunni Airbus A330 og verður framleidd í samvinnu við bandaríska varnarfyrirtækið Northrop Grumman. Vélin mun geta dælt eldsneyti á flestar orrustuflugvélar Bandaríkjahers í lofti.

Fréttavefur BBC segir samninginn áfall fyrir Boeing. Bandaríkin eiga um tvo þriðju allra eldsneytisflugvéla sem eru í notkun í heiminum. Einn yfirmanna Boeing sagði að ef Bandaríkjamenn misstu samninginn gæti það leitt til þess að þeir yrðu utan eldsneytisflugvélamarkaðarins í mörg ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×