Handbolti

Stjörnustúlkur bikarmeistarar

Stjarnan varð í dag bikarmeistari í handbolta þegar liðið lagði ungt lið Fylkis í úrslitaleik í Laugardalshöllinni 25-20. Stjarnan hafði yfir í hálfleik 12-9, en Fylkir kom til baka og náði að komast tveimur mörkum yfir um miðbik síðari hálfleiksins. Stjörnustúlkur komu hinsvegar til baka og tryggðu sér öruggan sigur í lokin.

Alina Petrache fór hamförum í liði Stjörnunnar og skoraði 14 mörk, en Sunna María Einarsdóttir 10 fyrir Fylkisliðið, sem á heiður skilinn fyrir góða frammistöðu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×