Golf

Dougherty náði að halda jöfnu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nick Dougherty lék á tíu höggum undir pari í gær.
Nick Dougherty lék á tíu höggum undir pari í gær. Nordic Photos / Getty Images

Nick Dougherty náði að halda jöfnu við heimamanninn Danny Chia eftir að keppni hófst aftur á öðrum keppnisdegi Malasíu meistaramótsins í golfi.

Chia náði að klára sínar átján holur áður en keppni var frestað vegna þrumuveðurs í morgun og var þá á tólf undir pari, rétt eins og Dougherty sem var þá búinn að klára tíu holur.

Eftir að keppni hófst á nýjan leik náði Dougherty að klára hringinn á sama skori en þurfti þó fugl á átjándu til þess.

Báðir eru á tólf undir pari en í þrijða sæti er Daninn Sören Kjeldsen á ellefu höggum undir pari.

Indverjinn Jyoti Randhawa er einnig á ellefu höggum undir pari en hann var einn 49 kylfinga sem náðu ekki að ljúka keppni áður en fór að dimma í Malasíu.

Norður-Írinn Darren Clarke náði hins vegar að klára en hann lék á 68 höggum í dag og er samtals á sjö höggum undir pari í 17.-28. sæti.

Birgir Leifur Hafþórsson er ekki meðal þátttakenda en mótið er liður í Evrópumótaröðinni í golfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×