Viðskipti erlent

Olíuverðið nálægt hæstu hæðum

Maður fylgist með rándýrum bensíndropanum dælast á tankinn.
Maður fylgist með rándýrum bensíndropanum dælast á tankinn. Mynd/AFP

Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór í tæpa 110 dali á tunnu í nótt . Það hefur lækkað lítillega og stendur nú í um 109 dölum. Verðið hefur aldrei verið hærra. Lækkun á gengi bandaríkjadals skýrir verðhækkunina á olíudropanum upp á síðkastið auk þess sem fjárfestar hafa í auknum mæli fest fé sitt á hrávörumarkaði eftir því sem hallað hefur undan fæti á hlutabréfamarkaði.

Gengi dalsins, sem hefur lækkað í kjölfar stýrivaxtalækkana bandaríska seðlabankans, lækkaði frekar eftir að seðlabankinn ákvað að veita allt að 200 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 13.600 milljarða íslenskra króna, inn á fjármálamarkaði. Innspýtingin er í samráði við evrópska seðlabankann, Englandsbanka, seðlabanka Kanada og svissneska seðlabankann.

Hráolíuverðið stóð í 108,64 dölum í Síngapúr í nótt. Það stóð til samanburðar í 87 dölum á tunnu í byrjun árs en í 70 dölum í ágúst í fyrra.

Breska dagblaðið Daily Telegraph hefur eftir sérfræðingum í olíumálum í dag, að ólíklegt sé að verðið á svartagullinu fari langt niður í nánustu framtíð. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×