Viðskipti erlent

Uppgjör Morgan Stanley yfir væntingum

John Mack, forstjóri Morgan Stanley.
John Mack, forstjóri Morgan Stanley. Mynd/AFP

Bandaríski bankinn Morgan Stanley, einn af stærstu fjárfestingarbönkum heims, hagnaðist um 1,53 milljarða dali, jafnvirði rúmra 118 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Fjórðunginum lýkur í enda febrúar í bókum bankans. Til samanburðar nam hagnaðurinn 2,66 milljörðum dala á sama tíma í fyrra.

Hagnaður á hlut, að teknu tilliti til arðgreiðslna, nam 1,45 dölum samanborið við 2,17 dali á hlut í fyrra. Þetta er engu að síður talsvert yfir væntingum sérfræðinga sem höfðu reiknað með rétt rúmlega einum dal í hagnað á hlut. Tekjur tímabilsins námu 8,3 milljörðum sem er sautján prósenta samdráttur frá síðast ári. Tekjurnar eru sömuleiðis rúmum milljarði dala yfir spám sérfræðing, að sögn Thomson Financials-fréttaveitunnar. Þótt afkoman sé almennt yfir væntingum er hann ekki laus undan undirmálslánakrísunni enda neyddist hann til að afskrifa samtals 2,3 milljarða úr bókum sínum. Afskriftirnar skiptast nokkkuð jafnt á milli verðbréfa og lánavöndla.

John Mack, forstjóri og stjórnarformaður Morgan Stanley, segir þetta góðar fréttir, sem fylgi í kjölfar uppgjöra frá Lehman Brothers og Goldman Sachs, sem voru birt í gær. En að aðstæður séu krefjandi: „Við reiknum með að aðstæður á mörkuðum verði erfiðar næstu mánuði," segir hann.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×