Erlent

Brúðhjónin 10 og 11 ára

Óli Tynes skrifar
Here come the brides ?
Here come the brides ?

Mohammed al-Rashidi er ellefu ára gamall. Hann er kvæntur frænku sinni sem er tíu ára. Það er þegar búið að gefa börnin saman en þau ætla ekki að halda upp á það fyrr en í sumar. Þá eru þau í fríi frá skólanum sínum í Saudi-Arabíu.

Mohammed segir í viðtali við héraðsblaðið Al-Shawns að hann sé alveg tilbúinn fyrir þetta hjónaband. Það muni hjálpa honum við námið. Hann segir einnig að hann hafi kvatt alla strákana í sínum bekk til þess að fylgja sínu fordæmi.

Skólastjórinn í skóla Mohammeds er ekki alveg sammála. Hann segir að það sé "ótilhlýðilegt" að láta fólk gifta sig svona snemma. Hann óskar þó brúðhjónunum alls hins besta í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×