Viðskipti erlent

Indverjar næla sér í bresk djásn

Fuore Jaguar XF-10, sportbíllinn frá Jaguar.
Fuore Jaguar XF-10, sportbíllinn frá Jaguar.

Bandaríski bílaframleiðandinn Ford hefur ákveðið að selja framleiðslu á bresku bílunum Jagúar og Land Rover til Tata, stærstu iðnsamsteypu Indlands sem sérhæfir sig í bílaframleiðslu.

Nákvæmt kaupverð hefur ekki verið gefið upp en breska ríkisútvarpið segir það hlaupa á tveimur milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði um 154 milljörðum íslenskra króna.

Breska bílaframleiðslan hefur ekki verið ábatasöm fyrir Ford, sem hefur auk þess átt við rekstrarvanda að stríða. Hafi því verið ákveðið að setja Jagúar og Land Rover í söluferli í júní í fyrra, að sögn BBC. Útvarpið segir sömuleiðis liggja fyrir að Tata verði að verja háum fjárhæðum á næstu árum eigi að bæta hag fyrirtækjanna. Það geti verið erfiður viðsnúningur, að mati BBC.

Tata setti Nano-bíllinn á markað í janúar á þessu ári. Hann kostar 2.500 dali og er það ódýrasti nýi bíllinn sem völ er á í heiminum í dag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×