Philip prins lét ekki myrða Díönu 31. mars 2008 11:04
Engin sönnunargögn benda til þess að Philip drottningarmaður hafi fyrirskipað að Díana prinsessa og Dodi Fayed ástmaður hennar yrðu myrt. Þetta kom fram í samantekt Scott Baker lávarðs sem fer fyrir réttarrannsókninni á dauða prinsessunnar í London. Haft er eftir Baker á Sky-fréttastofunni að ekkert hafi komið fram sem styðji að leyniþjónustan í Bretlandi eða í öðrum löndum hafi staðið á bak við bílslysið í París. Baker bætti við að margar af samsæriskenningum Mohamed al Fayed um slysið væru algjörlega úr lausu lofti gripnar. Lögmaður hans væri meira að segja hættur að elta ólar við þær. Samsæriskenninganar og orðrómur hefði verið rannsakaðar í smáatriðum. „Það er enginn vafi á því að þeir sem trúa morðkenningum muni halda áfram að hafa þá trú þrátt fyrir niðurstöðu kviðdómsins," sagði Baker. Ursula Errington, fréttamaður Sky á staðnum, sagði að kviðdómur gæti komist að fimm mismunandi niðurstöðum. Þar á meðal að um morð hefði verið að ræða, áreksturinn hefði verið slys, áreiti bílanna sem eltu væri um að kenna eða að áreksturinn mætti rekja til viðbragða ökumannsins. Meira en 250 manns báru vitni við rannsóknina á sex mánaða tímabili. Sumir í gegnum gervihnött frá öðrum löndum og aðrir, eins og í tilfelli leyniþjónustunnar, komu fram nafnlaust í lokuðu réttarhaldi.
Mest lesið Fjórtán ára barn hafði mikla peninga af níðingi Innlent Tveir sérlega hættulegir gómaðir á Íslandi og gríðarleg fjölgun verkefna Innlent Morðtilræði, vændi og frændi sagður drepinn fyrir komuna til Íslands Innlent „Þessi aðgangur hefur bara víst valdið tjóni“ Innlent Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Erlent Friðjón sakar eiginmann Heiðu Bjargar um karlrembu Innlent Vill svipta glæpamenn íslenskum ríkisborgararétti Innlent „Maður úr innsta hring íslenskrar stjórnsýslu“ reyni að afvegaleiða umræðuna Innlent Færeyingar leita til Íslands að útvarpsstjóra Innlent Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Erlent Fleiri fréttir Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Segja Musk ekki stýra DOGE en neita að nefna yfirmann Grét í faðmi Rihönnu eftir sýknudóminn Virðist kenna Úkraínumönnum um stríðið og stöðu mála Frans páfi með lungnabólgu í báðum lungum Fullyrðir að aðeins Trump hefði getað komið á friðarviðræðum Nítján af 21 útskrifaðir af sjúkrahúsi Setja fúlgur fjár í herinn: Segir ástandið verra en í kalda stríðinu CIA flýgur herdrónum yfir Mexíkó Halda frekari viðræður um „pirrandi atriði“ og samskipti ríkjanna Leiðtogi skuggalegs költs handtekinn Myndbönd sýna flugvélina lenda harkalega og enda á hvolfi Taldi sig vera að drepa Palestínubúa sem reyndust vera Ísraelar Bandaríkjamenn og Rússar funda með Evrópu á hliðarlínunni Farþegaþota brotlenti og hafnaði á hvolfi Evrópa þurfi að vígbúast Skynjar „nýja evrópska staðfestu og alvarleika“ fyrir fundinn í París Páfi sagður þarfnast frekari sjúkrahússlegu vegna sýkingar „Ferðamannaparadísin“ Gasa líklega rædd á fundi Rubio og krónprinsins Rubio mættur til Sádi-Arabíu og Lavrov segir Evrópu ekki eiga neitt erindi Blaðamenn AP í straffi hjá Hvíta húsinu vegna Mexíkóflóa Mette fulltrúi Norðurlanda á neyðarfundi í París Fyrsti opinberlega samkynhneigði imaminn skotinn til bana Reiðubúinn til að senda hermenn til Úkraínu Ísraelar fá sprengjur frá Bandaríkjunum Átján létust í troðningi Morð varpar ljósi á skuggalegan sértrúarsöfnuð Sjá meira