Formúla 1

Pólverji á ráspól í Barein

Robert Kubics fagnaði vel eftir tímatökuna í morgun.
Robert Kubics fagnaði vel eftir tímatökuna í morgun.

Pólski ökuþórinn Robert Kubica, sem ekur fyrir Sauber, verður á ráspól í Formúlu 1 kappakstrinum í Barein á morgun. Hann var fljótastur allra í tímatökunni í morgun. Felipe Massa hjá Ferrari var næstfljótastur.

Bretinn Lewis Hamilton hjá McLaren, sem leiðir stigakeppnina, varð þriðji og heimsmeistarinn Kimi Raikkonen fjórði. Þetta verður í fyrsta sinn í Formúlu 1 kappakstri síðan í kína 2006 að hvorki McLaren né Ferrari eru á ráspól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×