Erlent

Filipus heim af sjúkrahúsi

Óli Tynes skrifar

Filipus hertogi af Edinborg, eiginmaður Elísabetar Englandsdrottningar var útskrifaður af sjúkrahúsi í dag.

Hertoginn sem er 86 ára gamall var lagður inn í síðustu viku vegna lungnakvilla. Læknar segja nú að það hafi aðeins verið slæmt kvef.

Talsmaður konungsfjölskyldunnar sagði að Filipus myndi snúa aftur til Windsor kastala til þess að ná fullri heilsu áður en hann snýr aftur til opinberra starfa.

Ekki er sagt hversu langan tíma hertoginn ætlar að taka sér, en allavega hefur öllum stefnumótum hans næstu daga verið aflýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×