Handbolti

Aðalsteinn tekur við Fylki og Ragnar við Stjörnunni

Elvar Geir Magnússon skrifar

Aðalsteinn Eyjólfsson mun taka að sér þjálfun kvennaliðs Fylkis á næsta tímabili. Hann tilkynnti í lok síðasta mánaðar að hann ætlaði að hætta þjálfun Stjörnunnar.

Aðalsteinn er einn sigursælasti þjálfarinn í kvennaboltanum síðustu ár og landað fjölmörgum titlum með ÍBV og Stjörnunni.

Ragnar Hermannsson sem hefur verið aðstoðarþjálfari Stjörnunnar síðustu þrjú ár mun taka við sem aðalþjálfari Garðabæjarliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×