Erlent

Móðgun á MySpace, barsmíðar á YouTube

Guðjón Helgason skrifar

8 unglingar á Flórída - 6 stelpur og 2 strákar á aldrinum 14 til 18 ára - hafa verið ákærðir fyrir að ganga í skrokk á 16 ára stúlku. Árásin var fest á filmu og birti lögregla upptökuna í gær.

Stúlkan var boðuð í heimsókn í hús þar sem hún var lokuð inni og gengið í skrokk á henni. Stúlkan fékk heilahristing, marðist illa og skaddaðist á auga og vinstra eyra.

Fórnarlambið mun hafa móðgað skólafélagana sem réðust hana með skrifum um þá á samskiptasíðunni MySpace. Þess vegna var ákveðið að láta hnefana tala og átti að birta upptökuna á vefveitunni YouTube í von um mikið áhorf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×