Erlent

Monica Lewinsky skýtur aftur upp kollinum

Óli Tynes skrifar
Monica Lewinsky er nú 34 ára gömul.
Monica Lewinsky er nú 34 ára gömul.

Monica Lewinsky er farin að skjóta upp kollinum á kosningafundum Clinton fjölskyldunnar.

Ekki er það þó í eigin persónu heldur hefur Chelsea Clinton verið spurð um hana. Chelsea hefur verið dugleg að vinna fyrir móður sína og farið á marga kosningafundi í skólum og annarsstaðar þar sem hún nær til ungs fólks.

Í fyrsta skipti sem hún var spurð um hvaða áhrif samband föður hennar við Lewinsky hefði haft á fjölskylduna var henni nokkuð brugðið og svaraði hryssingslega "Það kemur þér ekki við." fyrir það uppskar hún lófatak.

Hún hefur nokkrumsinnum til viðbótar verið spurð um sambandið og svarar því nú til að það sé einkamál fjölskyldunnar.

Tíu ár eru liðin frá því upp komst um kynferðislegt samband forsetans fyrirrverandi við lærlinginn Lewinsky. Ekki var það þó vegna þess að hún hefði kjaftað frá, heldur sagði hún vinkonu sinni Lindu Tripp frá því. Tripp sveik svo vinkonu sína með því að gera sambandið opinbert.

Monica Lewinsky er nú 34 ára gömul en Chelsea Clinton 28 ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×