Erlent

SAS gefst upp á kínverskum flugfreyjum

Óli Tynes skrifar
SAS vildi nota kínverskar flugfreyjur í Asíuflugi sínu.
SAS vildi nota kínverskar flugfreyjur í Asíuflugi sínu.

SAS flugfélagið hefur gefist upp á að hafa kínverskar flugfreyjur í vinnu, vegna andstöðu danskra fagfélaga og yfirvalda.

Félagið réð 35 kínverskar flugfreyjur í janúar á þessu ári til þess að hafa í þeim flugvélum sem fljúga til Asíu.

Danskar flugfreyjur mótmæltu því að kínversku stúlkurnar voru ekki ráðnar á dönskum kjarasamningum.

Síðan hefur staðið í miklu stappi og málarekstri og SAS meðal annars verið dæmt í sekt vegna þess að kínversku freyjurnar höfðu ekki atvinnuleyfi. Og nú hefur flugfélagið gefist upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×