Körfubolti

Arnar Freyr í banni gegn KR

Elvar Geir Magnússon skrifar
Úr leik hjá Grindavík á tímabilinu. Grindvíkingar verða án Arnars Freys á fimmtudag. Mynd/Anton
Úr leik hjá Grindavík á tímabilinu. Grindvíkingar verða án Arnars Freys á fimmtudag. Mynd/Anton

Arnar Freyr Jónsson, leikstjórnandi Grindavíkur, getur ekki tekið þátt í toppslagnum gegn KR á fimmtudagskvöld þar sem hann tekur út leikbann. Þetta er mikil blóðtaka fyrir Grindvíkinga.

Arnar Freyr var dæmdur í leikbann fyrir óprúðmannlega framkomu í leik Grindavíkur og Þórs Akureyri um síðustu helgi. Leikbannið tekur gildi á hádegi á fimmtudag.

Grindavík heimsækir KR á fimmtudagskvöld en bæði lið eru með fullt hús í Iceland Express deildinni. Liðin mættust í úrslitum Powerade-bikarsins þar sem KR vann í hörkuskemmtilegum og spennandi leik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×