Innlent

Dæmd til að greiða um tíu milljónir vegna slyss í Mýrarhúsaskóla

Móðir barns í Mýrarhúsaskóla sem skellti hurð á höfuð kennara með þeim afleiðingum að hann hlaut örorku var dæmd til að greiða kennaranum 9,7 milljónir króna í bætur vegna slyssins. Seltjarnarnesbær var hins vegar sýknaður í málinu. Þá var móðirin dæmd til að greiða eina milljón króna í málskostnað.

Kennarinn stefndi bæði móðurinni, fyrir hönd ólögráða dóttur sinnar, og Seltjarnarnesbæ vegna slyss varð í skólanum árið 2005. Stúlkan, sem var þá ellefu ára gömul, hafði verið í kennslustund þegar hún tók upp á því að fela sig fyrir samnemendum sínum inni í vinnurými kennara sem er inn af skólastofunni. Kennarinn þurfti því að svipast um eftir nemandanum.

Þegar hann gægðist inn í vinnurýmið renndi nemandinn rennihurð fyrir opið með þeim afleiðingum að hurðin skall á höfuð kennarans. Kennarinn hlaut 25 prósenta varanlega örorku og krafði móður stúlkunnar og Seltjarnarnesbæ, sem rekur Mýrarhúsaskóla, um 9,7 milljónir króna í miskabætur.

Móðirin sagði í samtali við Vísi í síðustu viku að dóttir sín hefði verið að fela sig fyrir samnemendum sínum vegna þess að þeir hefðu lagt hana í einelti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×