Erlent

300 kettir í frystikistu

Óli Tynes skrifar

Maður í Sacramento í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn eftir að 300 kettir fundust í fyrstikistum hans. Í íbúðinni voru einnig 30 lifandi kettir.

Lyktin þar var skelfileg, enda allt útatað í kattaskít og hlandi. Í íbúðinni með hinum 47 ára gamla manni bjó einnig 81. árs gömul móðir hans.

Þeir kattanna sem voru lifandi voru fluttir á dýrahæli. Kettirnir 300 voru geymdir í þrem frystikistum. Ekki er enn vitað hvernig þeir drápust, eða hversvegna maðurinn geymdi þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×