Viðskipti erlent

Óánægja með stýrivaxtaákvörðun á evrusvæðinu

Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri evrópska seðlabankans.
Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri evrópska seðlabankans. Mynd/AFP

Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum. Þrýst hefur verið á bankann að hann fylgi fordæmi bandaríska og breska seðlabankans og færi vextina niður, svo sem til að lækka gengi evru gagnvart helstu gjaldmiðlum og blása þannig lífi í útflutning frá evrusvæðinu.

Nokkrir markaðsaðilar hafa horft til þess að evrópski seðlabankinn myndi koma til móts við erfiðar markaðsaðstæður og lækka vextina. Íslenskir markaðsaðilar eru þar á meðal en hugsanlegt þykir að Seðlabanki Íslands horfi til aðgerða kollega síns á evrusvæðinu.

Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri, sem flytur rökstuðning bankastjórnarinnar fyrir ákvörðuninni síðar í dag, hefur hins vegar staðið fast á því að bankinn eigi fremur að nýta stjórntæki sitt til að halda verðbólgu niðri en að auka fjárflæði á fjármálamörkuðum. Bankinn hefur engu að síður gripið til aðgerða, svo sem með því að veita milljörðum evra inn í efnahagslífið.

Reiknað er með að Trichet höggvi í sömu knérunn á fundi sínum í dag.

Fjárfestar hafa tekið ákvörðun bæði Englandsbanka og evrópska seðlabankans afar illa. FTSE-vísitalan í Bretlandi hefur nú fallið um 2,4 prósent, Dax-vísitalan í Þýskalandi um 2,7 prósent og hin franska CAC-40 um 2,3 prósent. Þá standa hlutabréfamarkaðir á Norðurlöndunum sömuleiðis á rauðu. Mesta lækkunin er í kauphöllum í Ósló í Noregi og í Helsinki í Finnlandi en báðir markaði hafa fallið um rúm þrjú prósent í dag.

Til samanburðar hefur Úrvalsvísitalan lækkað um rúm 1,4 prósent það sem af er dags eftir fall í gær. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×