Samfylkingin biður fólk að kjósa Röskvu Breki Logason skrifar 7. febrúar 2008 14:53 Dagný Ósk Aradóttir formaður Stúdentaráðs. „
Þetta er hið versta mál og kemur alls ekki frá okkur. Ég var mjög hissa þegar ég sá þetta og við erum búin að biðja þá um að taka þetta út," segir Dagný Ósk Aradóttir Röskvuliði og formaður Stúdentaráðs. Á heimasíðu Samfylkingarinnar er ákall frá Röskvu, félagshyggju framboði í Háskóla Íslands. Þar kemur fram að Röskva kalli eftir öllum jafnaðarmönnum sem skráðir eru í Háskóla Íslands um að leggja sér lið í kosningum til Stúdentaráðs og Háskólaráðs. En kosningar standa yfir í Háskólanum. „Það getur vel verið að Samfylkingin sé að biðla til félagshyggjufólks að kjósa okkur en þetta lítur út eins og við höfum sett þetta þarna inn, sem er ekki rétt," segir Dagný Ósk og áréttar að Röskva sé ekki ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, það séu samtök sem heiti Ungir jafnaðarmenn. Röskva eru samtök félagshyggjufólks í Háskólanum og segir Dagný að það geti vel verið að Samfylkingin vilji að þeim gangi vel. „Við erum samt ekki í neinum samskiptum við Samfylkinguna og erum ekki að biðja þau um að lobbýa fyrir okkur á þennan hátt, mér finnst þetta bara svolítið fyndið," segir Dagný sem hafði ekki hugmynd um hver hefði sett umrædda frétt inn á heimasíðu Samfylkingarinnar. Mörður Árnason Samfylkingarmaður er ritstjóri heimasíðunnar og sagðist í samtali við Vísi ekki vita hver hefði sett umrædda frétt inn á vefinn. Fréttina á vef Samfylkingarinnar má sjá hér.
Mest lesið Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Erlent Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Innlent Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fleiri fréttir Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Þrír karlmenn handteknir fyrir þjófnað í Laugarneshverfi Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi Sjá meira