Innlent

Stjórnmálamaðurinn Sturla heldur ræðu (myndband)

Vörubílstjórinn Sturla Jónsson ætlar að skella sér í pólitík. Hann sagði á Vísi í dag að hann væri búinn að stofna stjórnmálaflokk, Íslenska lýðræðisflokkinn, sem myndi bjóða fram í næstu alþingiskosningum.

Ljósmyndarinn Valgarð Gíslason fylgdi Sturlu eftir á dögunum þar sem hann jarðsetti, ásamt félögum sínum, loforð ríkisstjórnarinnar við Alþingishúsið og hélt þrumuræðu í kjölfarið.

Á myndbandinu má sjá stjórnmálamann framtíðarinnar messa yfir sínu fólki.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×