Spánverjinn Fernando Alonso stal senuni á lokamínútu annarrar æfingar Formúlu 1 liða á Síngapúr brautinni í dag. Hann náði besta tíma á Renault.
Sú staðreynd gæti valdið taugatitringi hjá toppökumönnunum í titilslagnum, sem fylgdu í kjölfarið. Lewis Hamilton varð annar, Felipe Massa næstur og Heikki Kovalaien fjórði. Nico Rosberg stakk sér á milli Kovalainen og Robert Kubica, en heimsmeistarin Kimi Raikkönen varð aðeins sjöundi.
Mark Webber gerði vel að ná ellefta sæti, eftir að hafa misst af meginhluta æfingarinnar eftir árekstur á fyrstu æfingu dagsins. Þá er athyglivert að tveir Williams Toyota bílar voru meðal tíu fremstu.
Þriðja æfing keppnisliða verður á morgun kl. 10:55 í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og tímatakan kl. 13:45. Mótsvæðið í Síngapúr má skoða hér.
Tímarnir í Singapúr
1. Alonso Renault (B) 1:45.654 30
2. Hamilton McLaren (B) 1:45.752 + 0.098 28
3. Massa Ferrari (B) 1:45.793 + 0.139 31
4. Kovalainen McLaren(B) 1:45.797 + 0.143 31
5. Rosberg Williams (B) 1:46.164 + 0.510 34
6. Kubica BMW (B) 1:46.384 + 0.730 36
7. Raikkonen Ferrari (B) 1:46.580 + 0.926 25
8. Button Honda (B) 1:46.901 + 1.247 32
9. Nakajima Williams (B) 1:47.013 + 1.359 32
10. Glock Toyota (B) 1:47.046 + 1.392 22