Viðskipti erlent

Hlutabréf niður og olíuverð í methæðir

Gengi hlutabréfa lækkaði almennt í Bandaríkjunum í dag eftir að heimsmarkaðsverð á hráolíu fór yfir hundrað dali á tunnu. Verðið hefur aldrei verið hærra í enda dags.

Litlar skýringar eru á hækkun olíuverðsins því dregið hefur úr eftirspurn og framboð nægt. Fjárfestar hafa hins vegar í auknum mæli veðjað á frekari hækkun með framvirkum samningum, að sögn Associated Press-fréttastofunnar. Fréttastofan segir þó segir ekki loku fyrir það skotið að OPEC-ríkin, sem framleiða um fjörutíu prósent af allri hráolíu, dragi úr olíuframleiðslu á fundi sínum í næsta mánuði. Þá lækkaði gengi bandaríkjadals frekar í dag sem gæti hafa ýtt undir verðhækkunina, að sögn fréttastofu Associted Press.

Heimsmarkaðsverð á hráolíu endaði í 100,01 dal á tunnu og hefur aldrei verið hærra. Sé tekið til tillits til verðbólgu á það þó enn langt í land að ná metverðinu árið 1980.

Fréttastofan hefur eftir sérfræðingi hjá verðbréfafyrirtækinu Schaffer's Investment Research í Bandaríkjunum, að verðhækkunin gæti farið út í verðlag og aukið verðbólgu frekar. Gerist það gæti þróunin leitt til þess að seðlabanki Bandaríkjanna dragi úr frekari lækkun stýrivaxta og snúi sér á ný að því að ýta verðbólgudrauginum út.

Dow Jones-hlutabréfavísitalan lækkaði um 0,09 prósent en Nasdaq-vísitalan um 0,67 prósent.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×