Körfubolti

Keflavík yfir í hálfleik

Nú er kominn hálfleikur í oddaviðureign Keflavíkur og ÍR í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Keflvíkingar hafa verið með forystu allan leikinn og leiða með 14 stigum í hálfleik 52-38.

Keflavík hafði yfir 29-25 eftir fyrsta leikhluta og ef svo fer sem horfir eru heimamenn í góðum málum fyrir síðari hálfleikinn.

Gunnar Einarsson er stigahæstur heimamanna með 11 stig og Jón N. Hafsteinsson er með 10 stig. Nate Brown er með 15 stig hjá ÍR og Eiríkur Önundarson 8 stig.

Smelltu hér til að sjá tölfræðina á KKÍ 

Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×