Körfubolti

Hörður Axel til Keflavíkur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mynd/Víkurfréttir

Hörður Axel Vilhjálmsson er kominn til Íslandsmeistara Keflavíkur en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Hörður er uppalinn hjá Fjölni en lék síðasta tímabil með Njarðvík þar sem hann var með 12,5 stig að meðaltali í leik.

Það er nóg að gerast á íslenska leikmannamarkaðnum um þessar mundir en í gær var greint frá því að Arnar Freyr Jónsson væri á leið frá Keflavík og til Grindavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×