Handbolti

Valsmenn lögðu Aftureldingu

Tveir leikir fóru fram í N1 deild karla í handbolta í dag. Valsmenn lögðu Aftureldingu í Mosfellsbæ 23-18 og Stjarnan mátti gera sér að góðu jafntefli gegn ÍBV í Mýrinni 26-26.

Það voru markverðirnir sem voru í aðalhlutverkunum í leiknum í Mosfellsbænum þar sem Oliver Kiss varði 19 skot í marki heimamanna en Ólafur Gíslason gerði betur og varði hvorki meira né minna en 27 skot í marki Vals.

Mörk Aftureldingar (skot): Ásgeir Jónsson 4 (9), Örn Ingi Bjarkason 3/2 (5/2), Einar Örn Guðmundsson 3 (9), Attila Valaczkai 2 (3), Jón Andri Helgason 2 (3), Hilmar Stefánsson 2/1 (5/2), Daníel Jónsson 2 (6/1), Magnús Einarsson (3), Reynir Árnason (1)

Varin skot : Oliver Kiss 19 (36) 53%, Davíð Svansson 2 (8/1) 25%

Mörk Vals (skot) : Arnór Malmquist 5/1 (6/1), Fannar Friðgeirsson 3 (5), Orri Freyr Gíslason 3 (5), Anton Rúnarsson 3 (6), Ingvar Árnason 2 (2), Sigfús Páll Sigfússon 2 (6), Baldvin Þorsteinsson 2 (6), Hjalti Þór Pálmason 2 (8), Kristján Þór Karlsson 1 (5), Gunnar Harðarson (1)

Varin skot : Ólafur Gíslason 27/2 (45/5) 60%

Þá voru tveir leikir seinnipartinn í N1 deild kvenna. Grótta tapaði heima fyrir Fram 28-26 og Haukar unnu öruggan sigur á Fylki á útivelli 36-22.

Mörk Fylkis:

Nataly Valencia 7,Elisabetha Kowal 5,Natasa Daminanovic 3,Sunna Jónsdóttir 2, Sigríður Hauksdóttir 2, Elín Helga Jónsdóttir 1,Ingibjörg Karlsdóttir 1,Anna Sif Gunnarsdóttir 1.

Mörk Hauka:

Erna Þráinsdóttir 7,Hanna G. Stefánsdóttir 7,Harpa Melsted 4, Ramune Pekarskyte 4,Hind Hannesdóttir 3,Inga Fríða Tryggvadóttir 3,Nína K Björnsdóttir 2,S.Herdís Hallsdóttir 1,Sandra Sif Sigurjónsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×