Handbolti

Stjörnustúlkur í góðri stöðu

Kvennalið Stjörnunnar er í vænlegri stöðu í N1 deild kvenna eftir leiki dagsins. Liðið vann nauman 20-19 sigur á Gróttu á útivelli í dag og getur því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri á Val í lokaleik sínum.

Lið Fram er í efsta sæti deildarinnar eftir stórsigur á FH á útvelli í dag 34-25 og Valur tapaði fyrir Haukum á heimavelli 25-24. Þá vann Fylkir sigur á Akureyri 32-29.

Fram er efst í deildinni með 41 stig og hefur lokið keppni í deildinni eftir 24 leiki. Stjarnan er í öðru sæti með 39 stig, Valur hefur 36 í þriðja sæti og Haukar í fjórða með 28 stig.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×