Formúla 1

Hættulegir varnarveggir hræða ökumenn

Tæknimenn Williams vinna að undirbúningi fyrir fyrstu æfingu keppnisliða sem er í dag kl. 11.00. Ekið verður á flóðlýstri braut.
Tæknimenn Williams vinna að undirbúningi fyrir fyrstu æfingu keppnisliða sem er í dag kl. 11.00. Ekið verður á flóðlýstri braut. Nordic Photos / AFP

Nokkrir ökumenn sem keppa í Formúlu 1 mótinu í Síngapúr um helgina telja nokkra hættu á ferðum í einni af erfiðari beygjum brautarinnar.

Þeir hafa beðið FIA að skoða málið, en nýstárleg útfærsla á köntum í kröppum hlykk í brautinni, í sjöundu beygju hefur vaxið ökumönnum í augum. Þeir taka fyrsta sprettinn á brautinni í dag.

„Það er alveg ljóst að ef ökumenn ná ekki að halda réttri aksturslínu í gegnum beygjuna, þá skella þeir á risavöxnum köntunum og stýra beint á vegg. Það er ekki til að auka öryggi okkar," sagði Jenson Button eftir að hafa labbað brautina.

FIA hefur verið að skoða málið í nótt, en Fernando Alonso samsinnir Button. „Það er veruleg hætta á að skemma bílanna í sjöundu beygjunni og ef bílarnir skemmast, þá er eins gott að pakka saman og fara heim. Það er skrítin lausn sem var fundin á því að varna því að menn skeri beygjuna," sagði Alonso.

Settir voru lágvaxnar en harðgerar kúlur á kantanna, en eins og menn muna fékk Lewis Hamilton refsingu á dögunum fyrir að stytta sér leið gegnum krappa beygju á Spa brautinni. En varnaraðgerð skipuleggjenda í Singapúr virðist ekki falla í kramið.

Tæknimenn liðanna hafa undirbúið sig í nótt fyrir átökin í Singapúr, en fyrstu æfingar eru kl. 11.00 og 13.25 í dag og eru þær sýndar í beinni útsendingu á Stöð 2 Sporti.

NÝTT: Skipuleggjendur mótsins í Singapúr létu breyta kantsteinum við tíundu beygju brautarinnar fyrir fyrstu æfingu keppnisliða í dag.

Sjá brautarlýsingu frá Singapúr
































Fleiri fréttir

Sjá meira


×