Erlent

Drepið þið kvikindin

Óli Tynes skrifar
Þið hafið fengið byssur. Notið þær.
Þið hafið fengið byssur. Notið þær.

Aðstoðar öryggismálaráðherra Suður-Afríku hefur skipað lögregluþjónum að skjóta og drepa afbrotamenn sem ógna öryggi borgaranna.

"Þið verðið að skjóta kvikindin ef þeir ógna ykkur eða ykkar bæjarfélagi. Þið eigið ekki að hafa áhyggjur af neinum reglum," sagði Susan Shabangu, ráðherra.

Glæpatíðni er ógnarhá í Suður-Afríku. Þar eru 20 þúsund manns myrtir árlega. Rán og nauðganir eru einnig daglegt brauð.

Susan Shabangu sagði á ráðstefnu með lögreglustjórum í Pretoíu; "Ég vil fullvissa lögregluna um að þeir mega drepa þessa glæpamenn.

Ég vil engar lélegar afsakanir. Þið hafið fengið byssur. Notið þið þær."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×