Tónlist

Dóttirin syngur aftur með Bubba í Köben

Bubbi stígur á svið í Danaveldi í kvöld fyrir framan hátt í eitt þúsund manns.
Bubbi stígur á svið í Danaveldi í kvöld fyrir framan hátt í eitt þúsund manns.
Gréta Morthens, dóttir Bubba, stígur á svið með föður sínum á tónleikum hans í salnum Audience í Kaupmannahöfn í kvöld. Stutt er síðan þau sungu saman á eftirminnilegan hátt lagið Með þér í þætti Ragnhildar Steinunnar, Gott kvöld. Núna munu þau endurtaka leikinn en í þetta sinn verður það fyrir framan hátt í eitt þúsund aðdáendur kappans, bæði íslenska og erlenda. Bubbi segir að tónleikarnir leggist mjög vel í sig, en undirbúningur var í fullum gangi þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær.

„Gestur minn á tónleikunum verður Poul Krebs og það hafa fleiri þekktir danskir tónlistarmenn boðað komu sína," segir hann fullur tilhlökkunar. Á meðal þeirra verður hugsanlega Jesper Binzen, söngvari stærstu rokksveitar Dana, D-A-D, sem áður hét Disneyland After Dark. Þekktasta lag hennar er vafalítið I"m Sleeping My Day Away sem kom út 1989. Paul Krebs er aftur á móti talinn þekktasti danski tónlistarmaðurinn á eftir sjálfum Kim Larsen. Hitaði Bubbi einmitt upp fyrir Krebs á tónleikum hans í Borgarleikhúsinu fyrir rúmu ári síðan.

Páll Eyjólfsson, umboðsmaður Bubba, segist hafa fengið góðar móttökur í Danaveldi þrátt fyrir fjaðrafokið í kringum efnahagsmálin. „Engum hefur verið hent út úr búðum og hér er allt í sómanum," segir hann. „Ég er búinn að vera hér í nokkra daga og finn ekki fyrir öðru en eðlilegum viðskiptaháttum."

Hann býst við frábærri stemmningu í kvöld: „Fólk verður ekki fyrir vonbrigðum. Hann verður með bandið með sér og mun taka klassísku slagarana í bland við nýrra efni." -fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×