Körfubolti

Gunnar semur við Keflavík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gunnar er hér með Bobby Walker sem lék með Keflavík í vetur.
Gunnar er hér með Bobby Walker sem lék með Keflavík í vetur. Mynd/Vilhelm

Gunnar Einarsson hefur skrifað undir nýjan samning við Keflavík en það kemur fram á heimasíðu félagsins.

Gunnar hefur alla tíð leikið með Keflavík og er næstleikjahæsti leikmaður liðsins með tæplega 700 leiki. Hann var kjörinn besti leikmaður úrslitakeppninnar nú í vor er Keflavík varð Íslandsmeistari.

Hann hefrur leikið með Keflavík frá árinu 1993 og hefur sjö sinnum orðið Íslandsmeistari með liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×