Tónlist

Í hópi bestu nýliða á iTunes

Söngkonan knáa er á lista iTunes í Bandaríkjunum yfir tíu bestu nýliðana í flokki þjóðlagatónlistar.fréttablaðið/anton
Söngkonan knáa er á lista iTunes í Bandaríkjunum yfir tíu bestu nýliðana í flokki þjóðlagatónlistar.fréttablaðið/anton

Tónlistarkonan Lay Low er á lista iTunes í Bandaríkjunum yfir tíu bestu nýliðana í flokki þjóðlagatónlistar. Þetta kemur fram á heimasíðu þessarar vinsælustu tónlistarveitu heims, þar sem fólk er jafnframt hvatt til að kaupa hennar nýjustu plötu, Farewell Good Night"s Sleep.

„Þetta er alveg frábært og gefur góð fyrirheit fyrir árið 2009," segir Kári Sturluson, umboðsmaður Lay Low. „Það er tíu manna teymi hjá iTunes sem velur þessa árslista og það þykja víst ekki slæmar tvíbökur að lenda á þeim, enda fara 85 prósent af allri sölu á netinu í gegnum iTunes."

Um sérlega góða kynningu er að ræða fyrir Lay Low sem hyggur á mikið tónleikahald erlendis á næsta ári til að fylgja plötunni eftir. Nýverið náði hún samkomulagi við Nettwerk Music Group um þriggja platna samning og mun hróður hennar því væntanlega aukast stórlega á næstunni.

Auk þess að hita upp fyrir Emilíönu Torrini á tónleikaferð um Evrópu á næsta ári hefur Lay Low ákveðið að spila í Kaupmannahöfn í fyrsta sinn sjötta mars. Að auki hefur hljómsveit hennar, Benny Crespo"s Gang, verið boðið að spila á South By Southwest-hátíðinni í Texas á næsta ári. - fb










Fleiri fréttir

Sjá meira


×