Formúla 1

Abu Dhabi skoðar flóðlýst mót 2009

Bernie Ecclestone vill hafa mót alls staðar í heiminum og skipuleggjendur móts í Abu Dhabi skoða möguleikla á að flóðlýsa mót sitt á næsta ári.
Bernie Ecclestone vill hafa mót alls staðar í heiminum og skipuleggjendur móts í Abu Dhabi skoða möguleikla á að flóðlýsa mót sitt á næsta ári. Mynd: Getty Images

Fyrsta Formúlu 1 mótið í Abu Dhabi í mið austurslöndum fer fram á næsta ári. Skipuleggjendur þess er að skoða að flóðlýsa mótið eins og gert var í Sínapúr.

Mótið í Abu Dhabi verður það síðasta á keppnistímabilinu, sem gefur því aukið vægi en ella.

"Við teljum að því ólíkara sem mótið er öðrum, því meiri athygli vekur það. Við munum tilkynna framkvæmd mótsins eftir keppnina í Japan um næstu helgi", sagði Philippe Gurdjan sem er keppnisstjóri mótsins.

Ferrari er þegar í nánu sambandi við yfirvöld í Abu Dhabi og verið er að byggja upp Ferrari skemmtigarð á staðnum. Verður skemmtigarðurinn bæði fyrir börn og fullorðna. Auk þess verður hægt að keyra bíla á brautum og í eyðimörkum í næsta nágrenni við brautina. Formúlu 1 brautin er 5.5. km að lengd og hönnuð af Hermann Tiike frá Þýskalandi.

"Ég tel mig mjög heppinn að vera þátttakandi í þessu verkefni. Brautin mun liggja um hafnarsvæðið í Abu Dhabi og götur borgarinnar. Hafnarsvæðiði verður mjög veglegt og risavaxnar skútur munu hýsa fólk sem fylgist með mótinu", sagði Tilke, en hann hannaði einmitt mótssvæðið í Singapúr.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×