Golf

Bandaríkjamenn unnu Ryder-bikarinn

Jim Furyk tryggði bandaríska liðinu sigurinn
Jim Furyk tryggði bandaríska liðinu sigurinn AFP

Bandaríkjamenn tryggðu sér í kvöld sigur í Ryder bikarnum í golfi í fyrsta skipti á öldinni. Úrslitin réðust þegar fjórir leikir voru eftir af einstaklingskeppninni í kvöld.

Það kom í hlut Jim Furyk að tryggja Bandaríkjamönnunum sigurinn á Valhallarvellinum, en hann tryggði liðinu 14 og hálfan vinning með sigri sínum á Angel Jimenez.

Bandaríkjamennirnir höfðu yfir 9-7 þegar keppni hófst í dag og sigur Furyk þýddi að Evrópuúrvalið gat ekki jafnað með sigri í síðustu fjórum keppnunum.

Anthony Kim burstaði Sergio Garcia í fyrsta leiknum og þeir Kenny Perry, Boo Weekley og JB Holmes fóru einnig með sigur af hólmi.

Margir höfðu tippað á að bandaríska liðið myndi lenda í vandræðum án Tiger Woods, en liðið hafði ekki unnið titilinn síðan en árið 1999.

Lokastaða mótsins var sú að bandaríska liðið vann með 16 og hálfum vinningi gegn 11 og hálfum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×