Viðskipti erlent

Lækkun á evrópskum hlutabréfamörkuðum

Miðlarar að störfum í kauphöllinni í Frankfurt í Þýskalandi.
Miðlarar að störfum í kauphöllinni í Frankfurt í Þýskalandi. Mynd/AFP

Það er langt í frá hefðbundinn föstudagur á evrópskum hlutabréfamörkuðum í dag en gengi hlutabréfa hefur almennt lækkað í álfunni á þessum síðasta degi vikunnar.

Gengi hlutabréfa lækkaði nokkuð eftir miðja vikuna eftir að olíuverðið rauk yfir 135 dali á tunnu. Það lækkaði lítillega í gær og jafnaði hlutabréfamarkaðurinn vestanhafs sig nokkuð í kjölfarið eftir lækkun í tvo daga á undan.

Olíuverðið stendur nú í rúmum 131 dal á tunnu og hefur það hækkað um 40 prósent frá áramótum. Breska ríkisútvarpið segir að útlit sé fyrir að sá verðmiði muni ekki standa lengi og geti hann farið aftur upp á næstunni.

FTSE-hlutabréfavísitalan í Bretlandi hefur lækkað um 0,53 prósent það sem af er viðskiptadagsins. Þá hefur Dax-vísitalan í Þýskalandi lækkað um 0,35 prósent og Cac 40-vísitalan í Frakklandi lækkað um tæpt prósent.

Svipaða sögu er að segja af norrænum hlutabréfamörkuðum en samnorræna hlutabréfavísitalan OMX40 hefur lækkað um rúm 0,6 prósent frá því viðskipti hófust í morgun.  

Nikkei-vísitalan í Japan hækkaði hins vegar um 0,24 prósent í enda viðskiptadagsins í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×