Körfubolti

Magnús verður áfram í Keflavík

Magnús sækir að Hlyni Bæringssyni í úrslitaeinvíginu
Magnús sækir að Hlyni Bæringssyni í úrslitaeinvíginu Mynd/Daniel

Magnús Gunnarsson hefur náð munnlegu samkomulagi við körfuknattleiksdeild Keflavíkur um að leika áfram með liðinu næsta vetur.

Í samtali við Vísi í dag sagðist Magnús eiga von á að skrifa undir samninginn í kvöld, en aðeins ætti eftir að ganga frá smáatriðum.

"Þetta klárast mjög líklega í kvöld. Við eigum bara eftir að fínpússa smáatriði og ég á ekki von á að þau verði fyrirstaða," sagði Magnús.

Íslandsmeistararnir sitja ekki auðum höndum í sumar og ætla að koma saman fljótlega og byrja að æfa og lyfta.

"Það munu allir vilja vinna Keflavík á næsta ári af því við erum meistarar og við verðum að vera klárir í slaginn," sagði Magnús í samtali við Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×