Körfubolti

Kotila hættur að þjálfa Snæfell

Bandaríski þjálfarinn Geof Kotila hefur ákveðið að hætta að þjálfar bikarmeistara Snæfells í körfubolta. Samningur hans rennur út nú í sumar og ætlar hann að flytja aftur til Danmerkur með fjölskyldu sinni. Þetta kom fram í Stykkishólmspóstinum.

Kotila bar helst við fjölskylduástæðum á bak við ákvörðun sína, en hann segir Hólmara hafa boðið sér fínan samning til að halda áfram. Kotila náði fínum árangri með Snæfellsliðið og gerði það og vann tvo bikara með liðinu í vetur þó það yrði að lúta í lægra haldi í úrslitunum gegn Keflavík á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×