Innlent

ESB aðild Íslands aldrei rædd

Guðjón Helgason skrifar

Á síðustu mánuðum hefur forsætisráðherra átt fundi með fjölmörgum þungaviktarmönnum innan Evrópusambandsins. Möguleg aðild Íslands að ESB mun aldrei hafa borið á góma.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, fundaði með Javier Solana, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar þess, og Ollie Rehn sem fer með stækkunarmál ESB í Brussel í febrúar. Möguleikar Íslands á aðild voru ekki ræddir. Forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi með Barroso að málið væri ekki á dagskrá hjá ríkisstjórninni.

Forsætisráðherra sat fund norrænna starfsbræðra sinna um alþjóðavæðingu og áhrif hennar í Norður-Svíþjóð fyrr í þessum mánuði. Evrópusambandsmál bar ekki á góma svo upplýst hafi verið.

Í síðustu viku fundaði forsætisráðherra með David Cameron, leiðtoga breska Íhaldsflokksins, og Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, í Lundúnum. Hann sagði eftir þá fundi að hann hefði rætt eitt og annað sem varðaði Evrópu við Brown lauslega en það hefði ekki verið aðal málið.

Annað mátti lesa úr fréttatilkynningu frá Downing-stræti þar sem sagði að Brown og Geir hefðu leitast eftir að ná samkomulagi um viðræður milli háttsettra sendifulltrúa ríkjanna í ljósi þess að líkur á aðild Íslands að Evrópusambandinu færu vaxandi. Þessu var breytt samdægurs. Forsætisráðherra sagði að þegar vísað væri til háttsettra sendifulltrúa væri verið að tala um varnarviðræður.

Forsætisráðherra átti síðdegis fund með Matti Vanhanen forsætisráðherra Finnlands sem kom í tveggja daga opinbera heimsókn til Íslands í dag. Finnar voru síðast í forsvari fyrir ESB seinnihluta árs 2006. Fram kom á blaðamannafundi síðdegis að möguleg aðild Íslands að bandalaginu hefði ekki borið á góma á fundi forsætisráðherranna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×