Formúla 1

Heidfeld vill breyta skipan dómaramála

Nick Heidfeld vill að sömu dómarar séu á öllum mótum í Formúlu 1.
Nick Heidfeld vill að sömu dómarar séu á öllum mótum í Formúlu 1. Mynd: Getty Images

Nick Heidfeld hjá BMW segist ekki skilja dómanna í Japan á sunnudaginn og vill að sömu dómarar verði í öllum mótum.

Sitthvorir dómarar eru á hverju móti og síðan er Alan Donelly hjá FIA ráðgjafi þeirra ef þörf krefur.

"Ég sá ekki mótið í heild sinni í sjónvarpi, bara brot af endursýningum en það sem gerðist í fyrstu beygju fannst mér ekki brot. Þetta var bara kappakstur. Hann gerði ekkert af sér. Það skildi ég ekki afhverju Sebastian Bourdais var dæmdur brotlegur þegar hann og Felipe Massa rákust saman. Ég get svosmen skilið dóminn á Massa þegar hann keyrði á Hamilton."

"Ég myndi vilja sá sömu dómara í öllum mótum, eða allavega einn fstadómara eins og var í fyrra þegar Tony Scott Andrews vann á öllum mótum. Menn sem koma sem dómarar í örfá mót hafa ekki nógu mikið innsæi. Það sýndi sig best í Japan. Það skildu fáir hvað var í gang", sagði Heidfeld.

Fjallað verður um málið í þættinum Rásmarkið á Stöð 2 Sport í kvöld með tveimur reyndum akstursíþróttamönnum, sem báðir hafa orðið Ísladsmeistararar. Þátturinn er upphitun fyrir mótið í Kína um næstu helgi.

Sjá nánar














Fleiri fréttir

Sjá meira


×